Innlent

Brutust inn í bakarí

MYND/Haraldur

Lögreglan í Reykjavík handtók í nótt tvo menn, grunaða um að hafa brotist inn í bakarí fyrr um nóttina og stolið leigubíl í Breiðholti í gærkvöldi. Mennirnir, sem báðir eru síbrotamenn, voru látnir lausir úr gæsluvarðhaldi á föstudag, en eru nú aftur komnir á bak við lás og slá, grunaðir um enn fleiri afbrot en þessi tvö.

Þá voru tveir ungir menn handteknir á staðnum við innbrot í leikskóla og einn gaf sig fram við lögreglu eftir innbrot í Menntaskólann við Hamrahlíð, eftir að hafa afhent fíkniefnasölum þýfið upp í skuld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×