Fótbolti

Getafe mætir Barcelona í bikarnum

Barcelona hefur ekki unnið spænska bikarinn síðan árið 1998
Barcelona hefur ekki unnið spænska bikarinn síðan árið 1998 NordicPhotos/GettyImages
Í dag var dregið í undanúrslit Konungsbikarsins á Spáni. Smálið Getafe frá Madrid mætir þar Spánarmeisturum Barcelona, en liðið er komið í undanúrslit keppninnar í fyrsta sinn í sögunni. Barcelona hefur unnið keppnina 24 sinnum. Hin undanúrslitaviðureignin verður einvígi Sevilla og Deportivo. Leikirnir fara fram dagana 18. apríl og 9. maí en úrslitaleikurinn er ekki fyrr en 23. júní.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×