Innlent

Þriggja bíla árekstur á Akureyri

Harður árekstur varð á Akureyri í dag þegar tveir fólksbílar lentu saman með þeim afleiðingum að annar kastaðist á þriðja bílinn. Áreksturinn varð á mótum Glerárgötu og Þórunnarstrætis. Klippa þurfti hurð af einum bílnum til að ná slösuðum manni út. Hann var fluttur á slysadeild með minniháttar áverka.

Þetta var sjötti áreksturinn á Akureyri í dag, en mikil hálka er í bænum, ísing og fimm til sex stiga frost.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×