Erlent

Fimm létu lífið og 75 slösuðust

Frá vettvangi sprenginganna í gær.
Frá vettvangi sprenginganna í gær. MYND/AP

Fimm létu lífið og fleiri en 75 slösuðust þegar flutningabíll sprakk nærri veitingastað í bæ rétt fyrir norðan Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Lögregla staðarins skýrði frá þessu. Sprengingin átti sér stað í bænum Taji sem er 20 kílómetra frá Bagdad.

Þrátt fyrir umdeilda fjölgun hermanna Bandaríkjanna í Írak hefur sprengjuárásum gegn almennum borgurum í Írak lítið fækkað. Fleiri en 25 létu lífið í árásum í gær og þar af voru fimm bandarískir hermenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×