Erlent

Ráðherra fellur vegna Önnu Nicole

Ráðherrann og fyrirsætan.
Ráðherrann og fyrirsætan.

Innflytjendaráðherra Bahamaeyja hefur sagt af sér vegna sögusagna um að hann hafi átt í ástarsambandi við Playboy fyrirsætuna Önnu Nicole Smith. Myndir hafa birst í blöðum af þeim saman uppi í rúmi, þar sem þau voru að vísu alklædd. Ráðherrann neitar að hafa misbeitt valdi sínu til þess að veita henni búsetuleyfi á eyjunum.

Shane Gibson, ráðherra, segir að Anna Nicole hafi verið fjölskylduvinur og að móðir hans hafi verið að passa fimm mánaða gamla dóttur hennar þegvar hún lést hinn áttunda þessa mánaðar. Milli þeirra hafi ekkert verið nema vinátta. Anna Nicole var tíður gestur á Bahamaeyjum. Þar fæddist dóttir hennar og þar lést ungur sonur hennar rétt eftir að systirin kom í heiminn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×