Erlent

Fjórir hálshöggnir í Sádi-Arabíu

Pílagrímar í Mekka,  í Sádí-Arabíu.
Pílagrímar í Mekka, í Sádí-Arabíu.

Fjórir menn frá Sri Lanka voru teknir af lífi í Saudi-Arabíu, í dag, fyrir ofbeldisfull rán. Þá hafa sextán manns verið teknir af lífi í landinu það sem af er þessu ári. Mennirnir höfðu engan myrt, en hinsvegar sært nokkra með byssuskotum, í ránum sínum. Aftökur í Saudi-Arabíu fara venjulega þannig fram að menn eru hálshöggnir, opinberlega, með sverði.

Morðingjar, nauðgarar og eiturlyfjasalar eru venjulega teknir af lífi í Saudi-Arabíu, en dauðarefsingu er einnig stundum beitt við öðrum glæpum. Mennirnir frá Sri Lanka voru teknir af lífi í höfuðborginni Ríad. Tugir manna eru teknir af lífi ár hvert, í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×