Fótbolti

Eiður Smári á hörðum aukaæfingum

AFP

Spænska fréttasíðan Mundo Deportivo greinir frá því í dag að Eiður Smári Guðjohnsen æfi nú manna mest hjá liði Barcelona og sást hann æfa einn í gær og í morgun. Það er því greinilegt að landsliðsfyrirliðinn ætlar að vinna sér sæti í liðinu á ný og er Frank Rijkaard mjög ánægður með einbeitingu hans.

Eiður hefur dottið út úr náðinni hjá Barca á síðustu vikum og missti sæti sitt í hendur Javier Saviola. Þá styttist í að Samuel Eto´o komi aftur eftir meiðsli, þó hann hafi reyndar átt í deilum við þjálfara sinn. Eiður Smári þykir sýna gott fordæmi með þessum stífu æfingum sínum og hrósaði Rijkaard honum fyrir hugarfarið.

"Það er ekki auðvelt fyrir menn að vera fyrir utan liðið en Eiður hefur sannarlega brugðist rétt við og hugarfar hans er til fyrirmyndar," sagði Rijkaard. Það er því greinilegt að Eiður ætlar að vera tilbúinn næst þegar kallið kemur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×