Fótbolti

Capello skammaður fyrir að hrósa öfgasinnuðum stuðningsmönnum

AFP

Fabio Capello, þjálfari Real Madrid, var tekinn inn á teppi hjá stjórn félagsins í dag þar sem hann var skammaður fyrir að hafa hrósað öfgasinnuðum stuðningsmönnum liðsins, Ultras Sur, fyrir stuðninginn í háðlegu tapi Real fyrir Levante á dögunum.

Capello var harðlega ávíttur fyrir þessi ummæli sín þar sem hætta var talin á því að þau ýttu undir eldfimt ástand á áhorfendapöllunum í framtíðinni, enda eru uppþot á knattspyrnuvöllum undir sérstakri smásjá þessa dagana í kjölfar harmleiksins á Ítalíu um daginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×