Erlent

Æsispennandi sjónvarp

Hugsið ykkur hvað er spennandi að horfa á osta þroskast.
Hugsið ykkur hvað er spennandi að horfa á osta þroskast. MYND/GETTY IMAGES

Breski ostaframleiðandinn West Country Farmhouse hefur beint myndbandsvél að ostarekka í geymslum sínum, og geta því ostaunnendur fylgst með því dag og nótt í heilt ár, hvernig ostarnir þroskast.

Þetta er sagt vera miklu meira spennandi en að horfa á málningu þorna, því ef áhorfendur eru heppnir geta þeir orðið vitni að því þegar ostunum er snúið. Þegar hafa 59.000 manns smellt á www.cheddarvision.tv, til að fylgjast með þessu æsispennandi sjónvarpsefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×