Innlent

Stóraukin umsvif í Afganistan

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra ætlar að gera Afganistan að þungamiðju friðargæslu- og þróunarverkefna Íslendinga í Asíu og í því skyni á að fjölga friðargæsluliðum þar um helming. Þetta tilkynnti hún á utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins í dag.

Málefni Afganistans voru í brennidepli á fundinum sem fór fram í höfuðstöðvum NATO í Brussel. Bandalagið hefur á sínum snærum 32.000 hermenn í Afganistan, þar eru tólf þúsund Bandaríkjamenn. Ástandið í landinu er erfitt viðureignar en á síðasta ári létu 4.000 manns lífið í átökum þar, fjórðungur þeirra voru borgarar.

Á fundinum í morgun sammæltust ráðherrarnir því um að auka umsvifin í Afganistan, bæði á sviði hernaðar og uppbyggingarstarfs. Mestu munar um framlag Bandaríkjastjórnar en á næstu tveimur árum ætlar hún að leggja 700 milljarða króna til þessara mála og auk þess verða 3.200 hermenn sem til stóð að kalla heim hafðir í landinu eitthvað áfram. Íslensk stjórnvöld ætla ekki að láta sitt eftir liggja í þessum efnum en tólf íslenskir friðargæsluliðar eru nú í Afganistan.

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra segir ýmsa möguleika í stöðunni, meðal annars hafi hún stungið upp á á fundinum að Íslendingar sæju um að koma stjórn alþjóðaflugvallarins í Kabúl aftur í hendur heimamanna og eins kemur til greina að Íslendingar veiti ráðgjöf um gerð vatnsaflsvirkjana í landinu. Það sé markmið hennar að Afganistan verði að þungamiðju friðargæslu- og þróunarverkefna Íslendinga í Asíu og í því skyni á að fjölga friðargæsluliðum þar um helming á árinu, upp í 25.

Að mati Valgerðar er ekki tímabært að velta vöngum yfir kostnaðinum af þessum verkefnum en hún segir þau í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um að auka framlög til þróunarsamvinnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×