Innlent

Svartur blettur á lýðræðissögu Íslands

Formaður Vinstri grænna segir það blett á lýðræðissögu Íslands að leynilegir viðaukar hafi verið gerðir við varnarsamning Bandaríkjanna og Íslands. Ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu segir það rangt mat að einn þeirra geri Bandaríkjamönnum mögulegt að taka yfir flugstarfsemi á Keflavíkurflugvelli án samráðs við Íslendinga.

Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, boðaði opna stjórnsýslu í ráðuneyti sínu í ræðu í gær. Hún sagði tíma reykfylltra bakherbergja liðinn þegar kæmi að ákvarðanatöku í öryggis- og varnarmálum. Nokkrum klukkustundum síðar var hulunni svipt af leynilegum viðaukum við varnarsamning Bandríkjanna og Íslands frá 1951 og breytingum á þeim frá í fyrra. Þetta var allt birt á vefsíðu ráðuneytisins ásamt skilasamningi Íslands og Bandaríkjanna frá í fyrra vegna brotthvarfs Bandaríkjahers.

Fram kemur í viðaukunum að Bandaríkjamenn höfðu tryggt það strax árið 1951 að þeir þyrftu ekki að hreinsa upp eftir Varnarliðið þegar það færi af landi brott. Þeim yrði aðeins gert að flytja burt eða eyða úrgangsefnum eftir því sem við væri komið.

Annað sem vekur athygli er að í viðbæti um almenna flugstarfsemi frá 1951, og breytingum á honum frá því í fyrra, segir að samkomulag sé um að bandarísk hermálayfirvöld geti tekið í sínar hendur fulla stjórn og ábyrgð á almennri flugstarfsemi, þar á meðal lendingar- og aðflugsstjórn, og flugþjónustu telji þau það nauðsynlegt vegna aðgerða sinna.

Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, segir að matið verði alltaf sameiginlegt og byggt á varnarsamningnum. Ekki sé rétt að hættumat Bandaríkjamanna einna ráði því hvenær þeir grípi til aðgerða sem þessar. Ef til þess komi sé hættuástand í gildi sem báðir meti jafn alvarlegt.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir innihald viðaukanna skelfilegt er verra sé sá gjörningur að halda þeim leyndum fyrir þingi og þjóð. Þetta sé svartur blettur á stjórnsýslu- og lýðræðissögu Íslands og minni um margt á það þegar danski forsætisráðherrar hafi leynt samningunum við Bandaríkjamenn um Thule-herstöðina á Grænlandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×