Innlent

Fylgjast grannt með ung­­mennum á Lauf­­skála­réttar­balli

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Laufskálaréttarballið fer fram í reiðhöllinni á Sauðárkróki á laugardag.
Laufskálaréttarballið fer fram í reiðhöllinni á Sauðárkróki á laugardag. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á Norðurlandi vestra mun viðhafa strangt eftirlit með ungmennum á svokölluðu Laufskálaréttarballi á Sauðárkróki um helgina. Öll tilvik „þar sem bersýnilega er um að ræða áhættuhegðun ungmenna“ verða tilkynnt til barnaverndaryfirvalda.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá lögregluembættinu á Facebook. Þar segir að von sé á fjölda fólks í Skagafjörð um helgina, meðal annars til að fagna heimkomu horssa af afréttum.

„Í tengslum við þá heimkomu hefur um árabil verið haldið svokallað „Laufskálaréttarball“ í reiðhöllinni á Sauðárkróki. Vakin er athygli foreldra og forráðmanna að 16 ára aldurstakmark er á ballinu,“ segir í tilkynningunni. Reynslan hafi sýnt að á slíkum samkomum séu meiri líkur á hvers konar áhættuhegðun „sem ekki er aldurssamsvarandi, svo sem áfengisneyslu“.

Lögregla muni í samstarfi við sveitarfélagið Skagafjörð viðhafa strangt eftirlit með ungmenna- og áfengislöggjöfinni. Öll afskipti af ungmennum undir 18 ára aldri verði skráð í kerfi lögreglu, auk þess sem þau tilvik þar sem „bersýnilega er um að ræða áhættuhegðun ungmenna“ verði tilkynnt til barnaverndaryfirvalda. 

„Í öllum tilvikum má ætla að haft verði samband við foreldra eða forráðamenn og óskað eftir því að viðkomandi ungmenni verði sótt. Ítrekað er að öll neysla ungmenna, þar með talin áfengisneysla verður tekin mjög alvarlega.“

Þá er áréttað að samkævmt áfengislöggjöfinni sé engum yngri en 20 ára heimilt að neyta áfengis, auk þess sem ölvun á almannafæri sé óheimil.

„Þá óskum við einnig eftir góðu samstarfi við foreldra, komi til þess að við þurfum að hafa afskipti af ungmennum þeirra,“ segir í lok tilkynningarinnar, sem Pétur Björnsson yfirlögregluþjónn skrifar undir. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×