Fótbolti

Riquelme með nokkur tilboð á borðinu

Riquelme er á förum frá Villarreal
Riquelme er á förum frá Villarreal NordicPhotos/GettyImages
Argentínski miðjumaðurinn Juan Roman Riquelme hefur nú framtíð sína algjörlega í höndum sér en hann er sagður vera að íhuga nokkur tilboð utan Spánar. Riquelme er úti í kuldanum hjá liði sínu Villarreal og vitað er af áhuga Bayern Munchen og liða í Mexíkó, Argentínu og Katar. Hann hefur væntanlega spilað sinn síðasta leik með spænska liðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×