Fótbolti

Beckham skrifar undir samning við LA Galaxy

NordicPhotos/GettyImages

David Beckham hefur náð samkomulagi við forráðamenn bandaríska knattspyrnufélagsins LA Galaxy og gengur í raðir liðsins í vor. Beckham staðfesti við Reuters að hann væri búinn að skrifa undir fimm ára samning.

"Real Madrid bauð mér tveggja ára samning, en eftir að hafa ráðfært mig við fjölskyldu mína ákvað ég að slá til og hef því ákveðið að ganga í raðir LA Galaxy í ágúst," sagði Beckham í samtali við Reuters. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×