Innlent

Á 130 kílómetra hraða á Miklubraut

Tvítugur piltur var gripinn eftir að bíll hans mældist á 130 kílómetra hraða á Miklubraut í nótt. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að hann hafi nokkrum sinnum áður gerst sekur um umferðarlagabrot.

Þá stöðvaði lögreglan för rúmlega þrítugs manns um miðjan dag í gær en hann hafði fengið bíl lánaðan til reynsluaksturs hjá bílasölu. Maðurinn hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Með honum í för var tæplega tvítug stúlka en í fórum hennar fundust ætluð fíkniefni. Manninum var sleppt eftir yfirheyrslu en stúlkan var færð í fangageymslu.

Tuttugu og tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á síðasta sólarhring. Flest voru þau minniháttar en einn ökumaður, karlmaður á þrítugsaldri, var þó fluttur á slysadeild. Sá hafði ekið bíl sínum út af vegslóða nærri Vífilsfelli. Meiðsli mannsins voru samt ekki talin alvarleg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×