Viðskipti innlent

Finnur verður framkvæmdastjóri

Finnur Oddsson, lektor og forstöðumaður MBA-náms við Háskólann í Reykjavík, sest í framkvæmdastjórastól Viðskiptaráðs Íslands í haust. Hann tekur við af Höllu Tómasdóttur. Finnur verður þó áfram viðloðandi HR enda er Viðskiptaráð Íslands stærsti eigandi skólans. Mun hann meðal annars halda áfram kennslu og rannsóknarstörfum við skólann.

Fram að framkvæmdastjóraskiptum ætlar Finnur að ganga frá lausum endum og koma nýjum manni inn í starf forstöðumanns. Sá verður Aðalsteinn Leifsson sem einnig gegnir stöðu lektors við HR. Hvort einhverra breytinga á skipulagi Viðskiptaráðs sé að vænta segist Finnur ekki geta sagt til um enn. Hins vegar sé ljóst að hann muni áfram vinna ötullega að því markmiði Viðskiptaráðs að tryggja að hér á landi sé gott viðskiptaumhverfi.

Stofnar sjóð fyrir konur

Halla Tómasdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs undir lok árs 2005. Hún staðfesti í gær þær sögusagnir að hún hygðist láta af störfum til að stofna fjárfestingarsjóð. Sá verður sérstakur fyrir þær sakir að hann mun beina sjónum að kvennafyrirtækjum. Það kemur ekki á óvart að Halla skuli snúa sér í þessa átt.

Hún hefur verið virk í þeirri baráttu að auka hlut kvenna í viðskiptalífinu. Þar að auki þykir hún hafa næmt nef fyrir ónýttum tækifærum. Halla hefur verið ein allt of fárra íslenskra kvenna sem hafa verið áberandi á viðskiptasíðum dagblaðanna. Missir verður að henni þar. Þess er þó að vænta að hún hverfi ekki frá nema í stutta stund og komi aftur sterk inn með haustinu á nýjum vettvangi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×