Enski boltinn

Wycombe dróst á móti Englandsmeisturunum

Spútniklið enska deildabikarsins í ár, Wycombe Wanderes, mætir Chelsea í undanúrslitum keppninnar, en dregið var í dag. Tottenham mætir sigurvegaranum í viðureign Liverpool og Arsenal.

Leikirnir fara fram 17. og 24. janúar og er leikið heima og að heiman. Sem kunnugt er var leik Liverpool og Arsenal frestað í síðustu viku en hann mun fara fram þann 9. janúar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×