Fótbolti

Real Madrid kaupir Gago

Fernando Gago er á leið til Real Madrid
Fernando Gago er á leið til Real Madrid NordicPhotos/GettyImages
Spænska stórveldið Real Madrid hefur fengið 13,7 milljón punda tilboð sitt í miðjumanninn Fernando Gago samþykkt frá argentínska félaginu Boca Juniors. Þetta tilkynntu forráðamenn Juniors í dag og mun leikmaðurinn fara til Madrid til að skrifa undir samning í næstu viku. Gago er tvítugur og er talinn mikið efni líkt og framherjinn Gonzalo Higuain sem gekk í raðir Real í síðustu viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×