Innlent

Tengivagn valt á Suðureyrarvegi

Vegurinn til Suðureyrar er lokaður vegna umferðaróhapps sem varð nú í eftirmiðdaginn. Þá valt tengivagn flutningabíls með þeim afleiðingum að hann lokar nú veginum. Óhappið varð til móts við eyðibýlið Laugar á veginum milli Suðureyrar og Botns í Súgandafirði en að sögn lögreglu á Ísafirði urðu engin slys á fólki. Reiknað er með að það taki að minnsta kosti klukkustund til viðbótar að fjarlægja tengivagninn af veginum og þannig opna hann aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×