Innlent

Báðust afsökunar á framkomu sinni

Ökumenn óku við hæla þeirra, sem komu fyrst að slysinu á Vesturlandsvegi á sunnudag, þegar þeir þröngvuðu sér framhjá. Á meðan bograði ungt par yfir þeim slösuðu og reyndi neyðarhjálp. Lögreglan hefur fengið þó nokkrar hringingar þar sem fólk hefur beðist afsökunar á háttsemi sinni á slysstað.

Kristinn Ingi Pétursson og kærasta hans komu fyrst að slysinu og hringdu strax á neyðarlínuna til að kalla út sjúkralið og til að fá upplýsingar um hvernig best væri að bera sig að við fyrstu hjálp. Sá sem kom næstur að slysinu skrúfaði niður rúðuna og spurði hvort búið væri að hringja í 112 og þegar þau játuðu því skrúfaði hann upp rúðuna og hélt leiðar sinnar. Þannig fór nokkur fjöldi bíla framhjá við hæla þeirra þar sem þau reyndu að hlúa að þeim slösuðu.

Kristinn Ingi segist ekki hafa verið sérlega stoltur af þjóðerni sínu þennan daginn. Hann segist ekki vita hvort fólk hafi haldið að það væri að gera einhvern greiða með því að stoppa ekki en það hafi verið léttir þegar umferðin stöðvaðist loks.

Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík, sagði í fréttum okkar í gær að margir þeirra sem töfust vegna slyssins hefðu sýnt fádæma óþolinmæði og dónaskap á slysstað. Eftir fréttina virtust þó einhverjir hafa séð að sér, því þó nokkur símtöl bárust frá vegfarendum sem vildu biðjast afsökunar á framkomu sinni en þeir höfuðu áður lýst óánægju með lokun vegarins. Lögreglan fagnar afsökunarbeiðnunum og vonar að eftirleiðis sýni vegfarendur meiri skilning við aðstæður sem þessar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×