Innlent

Stórtjón í eldingaveðri

MYND/Vilhelm Gunnarsson

Stórtjón varð á öllum tölvum í Vík í Mýrdal, Landbroti og Meðallandi, sem tengjast ISDN kerfi símans, í eldingaveðrinu í fyrrinótt. Fastlínusímar duttu líka út og virka aðeins GSM símar, þar sem síkt samband er á annað borð á þessu svæði.

Að sögn bónda, sem Fréttastofan ræddi við í morgun, mun vera von á búnaði frá Reykjavík í dag til að gera við ISDN kerfið. Síðan liggur fyrir að kanna hvort hægt er að lappa upp á einhverjar tölvur að nýju, eða hvort allir þurfi að endurnýja þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×