Innlent

Dregið úr hraðakstri á Suðurlandsvegi

Stórlega hefur dregið úr hraðakstri á Suðurlandsvegi undanfarna daga, svo tíðindum sætir, að sögn lögreglunnar á Selfossi. Heyrir nú til algerra undantekninga að menn mælist á of miklum hraða, og þeir fáu, sem hafa mælst, eru aðeins lítillega yfir hámarkshraða.

Lögregla hefur enga örugga skýringu á þessu, en getur sér þess til, að mikil umræða um öryggi vegfarenda um veginn, og hörmulegt banaslys, sem varð á veginum nýverið, kunni að skýra þetta að hluta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×