Innlent

Bíll sem stolið var á Akranesi fannst í Mosfellsbæ

MYND/Róbert

Ungur maður lenti í heldur óskemmtilegri reynslu síðastliðinn föstudag á Akranesi. Þá brá hann sér inn á bensínstöð í bænum en skildi bílinn sinn eftir í gangi fyrir utan. Einhver notfærði sér það því bíllinn var horfinn þegar maðurinn kom aftur út. Eigandinn fann bílinn þó sjálfur tveimur dögum síðar en þá var hann í Mosfellsbæ. Lögregla á Akranesi segir eitthvert tjón hafa orðið á bifreiðinni en brýnir fyrir ökumönnum að skilja bíla sína ekki eftir ólæsta og enn síður í gangi þegar farið er frá þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×