Erlent

Starfsfólk reyndi ekki að bjarga konunum

Talið er að kveikt hafi verið í sjúkrahúsi í Moskvu, höfuðborg Rússlands, þar sem fjörtíu og fimm konur létust í nótt. Slökkvilið borgarinnar deilir á starfsfólk fyrir að reyna ekki að koma fólkinu út. Þetta er mannskæðasti bruni í borginni í þrjú ár.

Eldurinn braust út á fíkniefnadeild spítalans snemma í morgun og dóu konurnar fjörtíu og fimm úr reykeitrun þar sem eina færa útgönguleiðin var við læst hlið spítalans. Flestar kvennanna voru látnar þegar slökkvilið kom á staðinn en þeim tókst að bjarga hundrað og sextíu manns út úr fimm hæða byggingunni. Rússneskar fréttastofur segja tvo starfsmenn spítalans hafa látist, en tíu manns voru lagði inn á sjúkrahús með reykeitrun.

Yuri Nenashev yfirvarðstjóri slökkviliðssins í Moskvuborg segir alla sem voru á annarri hæð byggingarinnar hafa látist, en þar var brunastigi læstur bakvið rimla. Hann segist 90 prósent viss um að kveikt hafi verið í spítalanum.Saksóknari borgarinnar telur að kviknað hafi í út frá rusli.

Tilkynning um brunann barst of seint til að slökkvilið næði að bjarga konunum, og slökkviliðið hefur deilt á starfsfólk sjúkrahússins fyrir að reyna ekki að koma fólkinu út strax og eldurinn kviknaði.

Aðstoðaralmannavarnaráðherra Rússa, Aleksandr Chuprian viðurkennir að starfsfólk hafi ekki reynt að bjarga fólkinu þegar það varð eldsins vart og hoppaði sjálft út af annarri hæð hússins. Hann þakkar fyrir að starfsfólkið komst lífs af.

Eftir skoðun á spítalanum í mars hafði slökkvuliðið ráðlagt að sjúkrahúsinu yrði lokað þar sem brunavörnum var verulega ábótavant.

Að meðaltali látast 18 þúsund manns árlega í brunum í Rússlandi, en sérfræðingar segja ástandið hafa versnað all verulega eftir að Sovétlíðveldið leið undir lok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×