Tónlist

KK og Ellen verða með tvenna jólatónleika í desember.

Fyrri tónleikarnir verða í Fríkirkjunni 7. desember og seinni í Hveragerðiskirkju 14. desember. Þau munu m.a. flytja lög af plötu sinni-JÓLIN ERU AÐ KOMA- sem kom út 2005 hjá 12 Tónum.

Platan varð mjög vinsæl og seldist upp á skömmum tíma. Þá munu þau einnig flytja lög sem eru splunku ný og sitthvað af eldri lögum sem landsmenn hafa áður notið.

Hinn kunni gítarleikari Guðmundur Pétursson mun vera þeim systkinum til halds og trausts.

Tónleikarnir hefjast 20:30.

Nánari upplýsingar er að finna á www.kk.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.