Enski boltinn

Mikilvægur sigur Man. Utd

Darren Fletcher fagnar sigurmarki sínu gegn Boro í kvöld.
Darren Fletcher fagnar sigurmarki sínu gegn Boro í kvöld. MYND/AFP

Manchester United þurfti að hafa mikið fyrir 2-1 sigri á Middlesbrough í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni sem lauk nú undir kvöld. Það var Darren Fletcher sem skoraði sigurmark leiksins og tryggði Man. Utd. sex stiga forystu á toppi úrvalsdeildarinnar eftir leiki helgarinnar.

Louis Saha hafði komið Man. Utd. yfir úr vítaspyrnu á 19. mínútu eftir að brotið hafði verið á Cristiano Ronaldo innan teigs. Í endursýningu sást hins vegar að Ronaldo lét sig falla eftir litla sem enga snertinu.

James Morrison jafnaði fyrir heimamenn á 69. mínútu en leikmenn Middlesbrough voru nánast enn að fagna þegar Darren Fletcher kom Man. Utd í 2-1. Þar við sat og halda Rauðu djöflarnir því ennþá forskotinu á toppnum, en meistara Chelsea eiga leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×