Innlent

3.091 heimsforeldri á Íslandi

Frábær frammistaða hjá Sveppa og Ilmi í kvöld hefur án efa hjálpa verulega til.
Frábær frammistaða hjá Sveppa og Ilmi í kvöld hefur án efa hjálpa verulega til. MYND/Vilhelm

Á meðan útsendingu stóð skráðu 3.901 manns sig sem heimsforeldri en um það snerist dagur Rauða nefsins. Er fjöldi heimsforeldra á Íslandi þá kominn í 11.601 úr 7650 en takmarkið var að ná 10.000 manns.

UNICEF á Íslandi vill koma þökkum til 365 miðla, Saga Film og allra bakhjarla sinna annarra sem hafa komið að gerð þáttarins. Einnig vilja þau þakka þeim sem skráðu sig sem heimsforeldri og tóku þátt í degi Rauða nefsins með einhverjum hætti.

Eitthvað hefur verið um að fólk leggi til fjárframlög og eru þau komin yfir 1.741.786 krónur og fyrir það var búið að safna einni og hálfri milljón. Svo mikið var að gera seinnihluta söfnunarinnar að bæta þurfti við 60 símtækjum og er nú svarað í 90 þeirra alls. Söfnunin og útsendingin gekk mjög vel og aðstandendur eru mjög ánægðir með útkomuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×