Innlent

Ólund í Frjálslyndum

Margrét Sverrisdóttir fullyrðir að gagnrýni hennar á rasísk ummæli Jóns Magnússonar hafi ráðið því að hún var rekin úr starfi framkvæmdastjóra þingflokks Frjálslynda flokksins í gærkvöld. Þessu vísar Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins á bug. Bæði vísa frá sér spurningum um klofning í flokknum.

Það hriktir í stoðum Frjálslyndra á sama tíma og fylgiskannanir spá flokknum yfir ellefu prósenta fylgi. Margréti Sverrisdóttur, framkvæmdastjóri þingflokks Frjálslyndra - og verðandi þingmannsefni - var í gærkvöld sagt upp störfum. Margrét segir að uppsögnina megi rekja til gagnrýni hennar á "rasísk" ummæli Jóns Magnússonar.

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins furðar sig á ummælum Margrétar. Þingflokkurinn hafi talið að starfsmaður hans yrði að geta starfað óskiptur fyrir þingflokkinn og ljóst væri að Margrét yrði á fullu í kosningabaráttu í vor. Fráleitt væri að tengja uppsögnina við ummæli Jóns Magnússonar.

Vísar Guðjón því á bug að Frjálslyndir séu að sækja fylgisaukningu á grundvelli kynþáttafordóma þó að þeir hafi markað sér skýra stefnu í málefnum innflytjenda. Vandamálin í þeim málaflokki séu einnig að koma bersýnilega í ljós meðal annars í húsnæðismálum. Stefna flokksins í þessum málum hafi legið skýr fyrir í vor.

Fróðlegt er að skoða brottvikningu Margrétar í ljósi ummæla Sverris föður hennar, og guðföður Frjálslynda flokksins, í Silfri Egils fyrir viku. Þar sem hann gagnrýndi Magnús Þór Hafsteinsson, þingmann flokksins og Guðjón Arnar fyrir að skjóta pólitísku skjólshúsi yfir Jón Magnússon, sem hann kallaði "pólitískan umrenning".

Telur Guðjón Arnar að þetta séu kaldar kveðjur frá fyrrverandi formanni flokksins og á erfitt með að skilja hvað búi að bakil. Aðspurður um hvort flokkurinn sé klofinn segir hann að aðrir verði að svara því. Margrét svaraði aðspurð á sömu lund í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×