Erlent

Veruleiki barna í þriðja heiminum víða skelfilegur

Barn deyr úr malaríu á 30 sekúndna fresti, sjúkdómi sem einungis lyf, sem ekki er völ á fyrir fátæka í þriðja heiminum, vinna á. Þrátt fyrir tækninýjungar og stöðugt flæði upplýsinga, deyja 30 þúsund börn úr hungri dag hvern.

Veruleiki barna í fjölmörgum löndum þriðja heimsins er vægast sagt skelfilegur. Hreinlæti er mjög víða ábótavant en yfir 376 milljónir barna þurfa að ganga langa vegalengd til að komast í hreint vatn daglega. Menntun er af skornum skammti en 110 milljónir barna alast upp án þess að læra að lesa, þetta er eitt af aðaláhersluatriðum Barnahjálpar Sameinuðu Þjóðanna. Í Gíneu Bissá er ástandið afar slæmt helmingur barna hefur ekki kost á skólagöngu og læsi kvenna er einungis 24%. UNICEF á íslandi vinnur nú að því að reisa 150 skóla í landinu og Síerra Leóne sem mun taka á móti 100 þúsund börnum, en það er meiri fjöldi en í öllu íslenska skólakerfinu.

Tugþúsundir barna eru seld í ánauð og vændi og fjöldi stúlkubarna í Afríku smitast af HIV veirunni á degi hverjum þegar þeim er nauðgað af sýktum mönnum sem trúa því að þá losni þeir við veiruna. Áætlað er að eitt þúsund börn deyi á degi hverjum af völdum alnæmis og enn fleiri verða munaðarlaus. Yfir 15 milljónir barna í heiminum hafa misst annað eða bæði foreldri úr sjúkdómnum. Þetta dregur úr jákvæðri þróun sem er að eiga sér stað og samfélögunum fer aftur.

Vinnuþrælkun er önnur alvarleg staðreynd margra barna í þriðja heiminum, en 218 milljónir barna vinna daglega við hættulegar aðstæður, meðal annars í landbúnaði og ýmiss konar framleiðslu. Unicef á Íslandi hefur sérstaklega unnið að verkefnum í Gíneu-Bissá, einu af fátækustu ríkum í heimi, og Síerra Leóne, sem hefur hæstu tíðni ungbarnadauða í heimi, á meðan lægsta tíðni ungbarnadauða er á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×