Innlent

Falsaðir seðlar í umferð

Þrír falsaðir seðlar hafa uppgötvast í borginni á síðustu dögum. Fölsunarmálum hefur þó fækkað á síðustu árum og þakkar Seðlabankinn það nýjum öryggisþáttum í peningaseðlunum.

Sárasjaldgæft er að falsaðir seðlar komist í umferð. Þó bárust lögreglunni í Reykjavík tvær tilkynningar um helgina um falsaða fimm þúsund króna seðla. Falsarinn er greinilega sá sami, því sama raðnúmer er á seðlunum. Og nú í morgun barst falsaður seðill í banka í borginni.

Þótt litprentarar séu víða þá eru fjölmörg atriði sem ekki er hægt að falsa. Reyndar ættu viðvörunarbjöllur að klingja hjá flestum þegar falsaður seðill er handfjatlaður, því pappírinn er mjög ólíkur ekta seðlum viðkomu. Og Seðlabankinn hefur á síðustu árum bætt við öryggisþáttum í forvarnarskyni. Það er málmþynna á seðlunum sem ekki prentast, öryggisþráður, upphleypt letur og vatnsmerki sem sést auðveldlega ef seðillinn er borinn upp að dagsbirtu. "Og ef þú berð svona seðil upp að útfjólubláu ljósi þá kemur í ljós lýsandi flötur sem er auðgreinanlegur og er ekki hægt að falsa eins og við höfum séð falsanir hér. En við höfum ekki séð hér vandaðar falsanir, þetta er meira offsett-ljósmyndun af seðlum og menn grunar að í einhverjum tilvikum sé þetta fikt ungmenna - sem er nógu slæmt," segir Tryggvi Pálsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabanka Íslands.

Fjöldi skráðra mála hjá lögreglu hefur hrapað á síðustu árum en þau náðu hámarki árið 2001 þegar 69 falsanamál komu upp en voru 24 árið 2004. Tryggvi er sannfærður að fleiri öryggisþættir seðlanna hafi skilað sér í færri fölsunum.

En það er falsari á ferð og fólki er því ráðlagt að hafa varann á sér. "Það er mjög mikilvægt einmitt núna þegar við verðum vör við svona tilvik að allur almenningur, verslanir og þjonustuaðilar þegar þeir eru að móttaka seðla gæti að þessum atriðum og láti strax vita ef þeir sjá eitthvað óeðlilegt."

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×