Innlent

Bílvelta undir Hafnarfjalli

Ökumenn keyra oft óvarlega undir Hafnarfjalli.
Ökumenn keyra oft óvarlega undir Hafnarfjalli. MYND/Vísir

Fólksbíll keyrði útaf undir Hafnarfjalli rétt um sjö leytið í kvöld. Velti ökumaður bílnum og er bíllinn mikið skemmdur en ökumaðurinn var einn á ferð. Hlaut hann áverka á höfði og brjóstkassa og var því fluttur á sjúkrahúsið í Borgarnesi og verður fylgst með honum þar yfir nótt. Lögreglan í Borgarnesi gat ekkert sagt um ástæður útafaksturins að svo stöddu.

Lögreglan í Borgarnesi tók einnig tólf ökumenn fyrir of hraðan akstur í dag og sá sem ók hraðast var á 142 kílómetra hraða þar sem 90 kílómetrar var leyfilegur hámarkshraði. Sagði lögreglan í Borgarnesi það vera óvenju mikinn hraða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×