Innlent

Reyndi að stinga lögreglu af með fíkniefni

MYND/Guðmundur

Talsvert af fíkniefnum fannst í fórum ökumanns sem reyndi að stinga lögregluna í Reykjavík af í nótt. Hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu, ók yfir gatanmót á rauðu, en eftir skamma en snarpa eftirför náðist hann. Grunur leikur á að hann hafi ætlað efnin til sölu en hann hefur áður gerst brotlegur við fíkniefnalöggjöfina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×