Innlent

Bílvelta í miðborg Reykjavíkur í nótt

MYND/Róbert

Tveir fólksbílar rákust saman á mótum Skothúsvegar og Fríkirkjuvegar í miðbæ Reykjavíkur laust eftir miðnætti í nótt með þeim afleiðingum að annar bíllinn valt. Í báðum bílum var ungt fólk, alls sex manns, og þurfti hluti hópsins að leita aðhlynningar á slysadeild. Báðir bílarnir voru dregnir burt af vettvangi. Að öðru leyti var rólegt í miðbænum og sömuleiðis annars staðar á landinu og því virðist sem fólk hafi almennt haldið sig heima í gærkvöld og nótt enda veður víða slæmt á landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×