Innlent

Eldur á bifreiðaverkstæði í Keflavík

Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja var kallað að bílasprautunarverkStæði í Grófinni í KefLavík á ellefta tímanum í morgun vegna elds sem kviknað hafði í gömlum kyndiklefa inni á verkstæðinu. Enginn maður var í hættu í brunanum en slökkvistarf tók um klukkustund og var lokið um klukkan hálftólf. Eldsupptök eru ókunn en rannsóknardeild lögreglunnar kannar nú aðstæður á vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×