Innlent

Hlaut áverka á andliti og höfði eftir árás

Ráðist var á karlmann á fertugsaldri á veitingastað í miðborg Reykjavíkur í nótt. Karlmaðurinn hlaut talsverða ákverka bæði á andliti og höfði. Tveir menn á þrítugsaldri réðust á manninn á fimmta tímanum í nótt og lömdu bæði og spörkuðu í hann. Mennirnir eru nú í haldi lögreglunnar og bíða yfirheyrslu. Lögreglan segir svo virðist sem að árásin hafi verið tilefnislaus en ekki vitað til að árásarmennirnir og fórnarlambið hafi þekkst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×