Erlent

Barist í Nígeríu

Til skotbardaga kom milli herskárra Nígeríumanna og liðsmanna í stjórnarher landsins í óshólmum Nígeríu síðdegis. Skipts var á skotum nálægt olíudælustöð Royal Dutch Shell á austurhluta svæðisins.

Samkvæmt tilkynningu frá samtökum, sem berjast fyrir frelsun svæðisins undan því sem þau kalla oki stóru olíufélaganna, hefur stjórnarherinn sent níu herbáta og herþyrlu til að styðja við hermenn á landi.

Í tilkynningunni segir að liðsmönnum samtakanna verði aftur leyft að ræna starfsmönnum olíufélaganna til að koma mótmælum á framfæri auk þess sem árásir á byggingar og starfsstöðvar félaga á svæðinu verði gerðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×