Innlent

Lærbrotnaði þegar hann klemmdist á milli tveggja bifreiða

MYND/GVA
Sjö ára gamall drengur lærbrotnaði í dag að hann klemmdist á milli tveggja bifreiða. Atvikið var með þeim hætti að móðir hans hafði brugðið sér inn í hús og skilið hann og systur hans eftir í bíl sínum. Annað þeirra náði að losa bifreiðina úr gír og setja í hlutlausan og við það rann bifreiðin af stað. Börnin hlupu þá út úr bifreiðinni og reyndu að stöðva hana með því að ýta á móti. Endaði þetta með því að strákurinn klemmdist á milli þegar bifreiðin hafnaði aftan á mannlausri bifreið í götunni. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist sem fyrr segir lærbrotinn. Hann þykir þó hafa sloppið vel í slysinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×