Jay Williams snýr aftur 28. september 2006 22:23 Jay Williams átti aldrei að geta spilað körfubolta aftur á ævi sinni, en hann er nú að reyna að festa sig í sessi í æfingabúðum hjá New Jersey Nets NordicPhotos/GettyImages
Leikstjórnandinn Jay Williams hefur skrifað undir samning við New Jersey Nets í NBA deildinni en hann hefur ekki spilað leik í þrjú ár eftir að hafa lent í mjög alvarlegu bifhjólaslysi í júní árið 2003. Williams leiddi Duke til sigurs í háskólaboltanum árið 2001 og var valinn númer 2 af Chicago Bulls í nýliðavalinu árið 2002. Hann var valinn í annað úrvalslið nýliða í NBA árið 2003, en ók á ljósastaur á bifhjóli sínu sumarið eftir og var á sjúkrahúsi í hvorki meira né minna en þrjá mánuði í kjölfarið. Allir voru á einu máli að Williams næði aldrei aftur að spila körfubolta eftir slysið, þar sem hann sleit öll liðbönd í hnénu á sér og hlaut taugaskaða í vinstri fætinum. Williams hefur allar götur síðan strengt þess heit að snúa aftur á körfuboltavöllinn og fréttir af góðri frammistöðu hans á æfingum fyrr í sumar hefðu lofað góðu, var ekki talið líklegt að hann væri nógu góður til að komast að hjá liði í bestu deild í heimi. Forráðamenn New Jersey Nets hafa þó ákveðið að gefa honum tækifæri og hafa nú gert við hann samning sem tryggir honum þó ekki sæti í liðinu til framtíðar, en leikmaðurinn er sagður í skýjunum með að fá tækifæri til að spreyta sig með Nets - sem spila aðeins 30 km frá æskuheimili hans.
Erlendar Íþróttir Körfubolti NBA Mest lesið „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Fótbolti LIV-kylfingar mega áfram taka þátt í Ryder-bikarnum og PGA-meistaramótinu Golf Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Íslenski boltinn Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum Handbolti Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Handbolti „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ Handbolti Atlético lagði sprækt lið Leipzig Fótbolti Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Handbolti Rautt spjald snemma leiks dýrt spaug fyrir Börsunga Fótbolti Raya hetjan er Skytturnar lögðu rútunni í Bergamo Fótbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira