Erlent

25 uppreisnarmenn í Afganistan drepnir

Bandarískir hermenn að störfum í Kandahar í Afganistan.
Bandarískir hermenn að störfum í Kandahar í Afganistan. MYND/AP
Afgangskar öryggissveitir skutu 25 uppreisnarmenn til bana í Helmand-héraði í suðurhluta Afganistans í morgun. Uppreisnarmennirnir gerðu áhlaup á lögreglustöð í héraðinu en öryggissveitum tókst að hrinda því og felldu 25 menn. Þá slösuðust þrír ítalskir friðargæsluliðar þegar herbifreið var sprengd í loft upp í Herat-héraði í vesturhluta landsins. Átök öryggissveita við uppreisnarmenn talibana hafa ekki verið meiri í Afganistan frá því að stjórn talibana var komið frá völdum fyrir um fimm árum en stjórnvöld í Afganistan og Pakistan hafa deilt um það hverjum sé um að kenna. Afganar halda því fram að herskáir múslimar streymi yfir landamærin frá Pakistan en Pakistanar segja málið innanríkisvanda Afgana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×