Fótbolti

CSKA lagði Hamburg

Dudu fagnar hér sigurmarki sínu gegn Hamburg í kvöld
Dudu fagnar hér sigurmarki sínu gegn Hamburg í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Rússneska liðið CSKA frá Moskvu lagði þýska liðið Hamburg 1-0 í kvöld í fyrsta leiknum sem fram fór í meistaradeildinni. Það var Brasilíumaðurinn Dudu sem skoraði sigurmark CSKA á 59. mínútu og varamaðurinn Benjamin Lauth fékk að líta rauða spjaldið í liði Hamburg aðeins 6 mínútum eftir að honum var skipt inn á. Hamburg hefur því tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í G-riðlinum, þar sem liðið leikur ásamt CSKA, Arsenal og Porto.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×