Erlent

Upphlaup vegna orða Cherie Blair

Eiginkona Tony Blairs harðneitar því að hafa sagt Gordon Brown, fjármálaráðherra ljúga, þegar hann lýsti góðu sambandi sínu og forsætisráðherrans, á flokksþingi Verkamannaflokksins. Bresk sjónvarpskona segist hafa heyrt það greinilega. Í ræðu sinni á flokksþinginu bar Gordon Brown mikið lof á Tony Blair. Hann sagði meðal annars að það væru forréttindi að hafa fengið að vinna með skilvirkasta forsætisráðherra sem Verkamannaflokkurinn hefði nokkru sinnum átt. "Það er lygi" sagði þá Cherie Blair, stundarhátt, ef trúa á frásögn sjónvarposkonunnar. Hún segir að hún hafi verið innan við metra frá Cherie Blair og greinilega heyrt orð hennar. Þessu neitar forsætisráðherrafrúin og það stendur því fullyrðing gegn fullyrðingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×