Erlent

Gíslataka í rússnesku fangelsi

Lögreglumenn fyrir utan fangelsið.
Lögreglumenn fyrir utan fangelsið. MYND/AP

Rússneskum sérsveitarmönnum tókst í dag að frelsa menn sem gæsluvarðhaldsfangar í fangelsi í Moskvu tóku í gíslingu. Engan mun hafa sakað í atganginum en heyra mátti skothríð og sprengingar úr nokkurri fjarlægð.

Enn er atburðarásin nokkuð óljós og fer tvennum sögum af því hve margir voru teknir í gíslingu. Ýmist er talað um tvo gísla, fangelsisstjórann og annan starfsmann fangelsinsin, eða fimmtán gísla. Í fangelsinu eru gæsluvarðhaldsfangar sem bíða þess að mál þeirra verið tekin fyrir af dómstólum.

Meðan á umsátrinu um fangelsið hafði ein rússnesk fréttastofa eftir starfmanni fangelsisins að gíslarnir væru fimmtán sem er þvert á það sem einn stjórnenda fangelsisisn sagði eftir að gíslatökunni lauk. Þar sagði hann gíslana hafa verið tvö og engan sakað í áhlaupi sérsveitarmanna. Fyrr um daginn bárust einnig fréttir af því að fjörutíu fangar hefðu gert uppreisn en því var vísað á bug.

Að sögn yfirvalda var reynt að semja við gíslatökumennina en að lokum hafi verið látið til skarar skríða og notaðar til þess hvellsprengjur og reykvélar til að hrella fangana og yfirbuga. Eftir að ráðist var til inngöngu mátti heyra skothríð og sprengingar í nokkurri fjarlægð frá fangelsinu.

Yfirmaður fangelsinsi segir ljóst að villandi upplýsingum hafi verið lekið í fjölmiðla, og þær líkast til komið frá gíslatökumönnunum sjálfum.

Itar-tass fréttastofan hefur eftir yfirmanni fangelsa í Rússlandi að aðgerð sérsveitarmanna hafi tekið eina og hálfa mínútu og valdi hafi verið beitt.

NTV fréttastofan segist hafa heimildir fyrir því að fimm menn í fangelsinu hafi hlotið stungusár áður en sérsveitarmenn réðust til inngöngu.

En hver svo sem atburðarásin var virðist sem gíslum hafi verið bjargað og gíslatökumennirnir megi eiga von á því að fá maklega málagjöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×