Innlent

UNICEF og Barcelona vinna saman

MYND/Ole Nielsen

UNICEF og spænska knattspyrnufélagið Barcelona, sem Eiður Smári Guðjohnsen leikur með, munu á fimmtudaginn skrifa undir fimm ára samstarfssamning vegna HIV-smitaðra barna og barna sem hafa orðið munaðarlaus vegna alnæmis. Í tilkynningu frá UNICEF á Íslandi kemur fram samstarfið sé hluti af alheimsátaki til stuðnings börnum í þeirri stöðu. Stór hluti átaksins felst í að vekja athygli á því að HIV hefur æ meiri áhrif á líf og aðstæður barna og munu Börsungar spila stórt hlutverk í þeirri vitundarvakningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×