Erlent

Óvanalegt tilboð

Norska lögreglan fékk óvanalegt tilboð á dögunum, frá manni sem situr inni fyrir umfangsmikla ránstilraun þar sem einn lögreglumaður lét lífið. Fanginn bauð þeim að vísa þeim á felustað tveggja frægustu málverka norskra málara, meðal annars ópsins eftir Munch.

Í staðinn vill hann fá að velja í hvaða fangelsi hann afplánar nítján ára fangavist sem hann á fyrir höndum og svo vill hann líka fá að hitta kærustuna sína þegar hann vill.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×