Erlent

Drottning Maoría á Nýja-Sjálandi jörðuð

Drottning Maoría á Nýja-Sjálandi var lögð til hinstu hvílu uppi á Taupiri-fjalli í morgun. Þúsundir voru saman komnar fyrir jarðarförina og fylgdu kistunni upp á fjallið. Fyrir jarðarförina var eftirmaður drottningarinnar útnefndur og krýndur konungur Maoría. Sá heitir Tuheitia Paki og er elsti sonur drottningarinnar en fjölskyldan hefur verið við völd frá árinu 1858. Fólkið við jarðarförina var spurt hvort þau vildu fá hann sem konung og svarið var samróma játandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×