Erlent

Eldurinn sást langar leiðir

Töluverður eldur kviknaði þegar sprenging varð í gasleiðslu í Austur-Tyrklandi í gær. Sprengingin varð þar sem leiðslan liggur í gegnum Agri-hérað.

Héraðsstjórinn segir margt benda til þess að uppreisnarmenn Kúrda, sem berjast fyrir sjálfsstjórn, hafi sprengt leiðsluna. Ekki hefur þó fengist staðfest að sprengju hafi verið komið fyrir. Leiðslan sem um ræðir flytur jarðgas.

Sprengingin mun hafa verið svo kröftug að nálæg hús hristust. Nálægri dælustöð var lokað. Eldinn mátti sjá loga í margra kílómetra fjarlægð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×