Sport

Isaksson kominn til City

Andreas Isaksson er genginn í raðir Manchester City
Andreas Isaksson er genginn í raðir Manchester City NordicPhotos/GettyImages
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City hefur gengið formlega frá samningi við sænska landsliðsmarkvörðinn Andreas Isaksson frá franska liðinu Rennes. Isaksson á að baki 42 landsleiki og er 24 ára gamall. Isaksson mun því taka stöðu David James í marki City, en James gekk á dögunum í raðir Portsmouth.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×