Upp­gjörið: Valur - Haukar 80-82 | Köstuðu sigrinum frá sér og klikkuðu á vítunum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Jiselle Thomas fékk tækifæri til að jafna leikinn á vítalínunni en mistókst. 
Jiselle Thomas fékk tækifæri til að jafna leikinn á vítalínunni en mistókst.  vísir/anton

Haukar sóttu 80-82 sigur á Hlíðarenda í öðrum leik undanúrslitanna gegn Val. Heimakonur leiddu leikinn nánast allan tímann en köstuðu frá sér sigrinum undir lokin, Jiselle Thomas mistókst svo að jafna á vítalínunni á lokasekúndunum. Haukar verða með sópinn á lofti í næsta leik liðanna á laugardaginn. 

Valskonur byrjuðu leikinn vel og virtust vera búnar að finna lausnir við pressuvörninni, en Haukar aðlöguðu sig fljótt og fóru aftur að gera þeim lífið leitt.

Valur var skrefinu á undan í fyrri hálfleik eftir fína byrjun og náði að viðhalda forystunni, aðallega þökk sé góðri þriggja stiga nýtingu.

Haukarnir voru hins vegar aldrei langt undan, jöfnuðu leikinn rétt fyrir hálfleik, byrjuðu síðan seinni hálfleik á góðu áhlaupi og tóku fimm stiga forystu.

Jamil Abiad, þjálfari Vals, bað strax um leikhlé til að koma sínu liði aftur á beinu brautina. Sem gekk eftir, Valur átti gott áhlaup og endaði síðan þriðja leikhlutann á þriggja stiga skotum sem gáfu þeim fimm stiga forystu fyrir fjórða leikhlutann.

Í fjórða leikhluta héldu Valskonur áfram að spila fína vörn, setja flott þriggja stiga skot og rífa niður sóknarfráköst, eins og þær höfðu gert allan leikinn. Þær héldu sér fyrir framan Haukana alveg þar til á lokasekúndum leiksins.

Köstuðu sigrinum frá sér

Þá átti sér stað skelfileg atburðarás fyrir Val, tapaður bolti og náðu svo ekki varnarfrákasti. Haukakonan Þóra Kristín fékk boltann og henti erfiðu þriggja stiga skoti ofan í til að taka forystuna á ný eftir að hafa verið undir allan fjórða leikhlutann.

Vont vítaklúður

Með rétt rúmar tvær sekúndur á klukkunni náði Valur að koma boltanum á Jiselle Thomas, sem fór upp í skot en Rósa Björk braut á henni.

Jiselle fór því á vítalínuna, með leikinn undir. Tvö skot og tveggja stiga munur, en hún klikkaði á báðum skotum og Haukar sluppu með tveggja stiga sigur.

Staðan er því 2-0 í einvíginu og Haukar verða með sópinn á lofti í næsta leik liðanna á Ásvöllum

Stjörnur og skúrkar

Ekki erfitt skúrkval, Jiselle Thomas fékk tækifæri til að jafna leikinn á vítalínunni en klikkaði úr báðum skotum. Seinna klikkið reyndar viljandi til að reyna að bjarga jafntefli. Slakur leikur líka heilt yfir hjá henni, léleg skotnýting og margir tapaðir boltar.

Þóra Kristín stjarna leiksins eftir að hafa sett niður þriggja stiga skot til að vinna hann. Annars ekki endilega hennar besta frammistaða, líkt og margar í Haukaliðinu. Í raun ótrúlegt að þær hafi unnið þennan leik.

Dómarar

Bjarki Þór, Jón Þór og Bjarni Rúnar mynduðu tríó kvöldsins. Vel haldið utan um hlutina. Duglegir að dæma á Haukana sem spiluðu grimma hápressuvörn. Eitthvað um örlítil mistök, eins og þegar Dagbjört fór óvart á vítalínuna í stað Jiselle, en ekkert stórvægilegt sem hafði áhrif á úrslit leiksins.

Viðtöl 

Þóra Kristín: Mættum svolítið illa til leiks

„Þær leystu betur úr og brutu upp pressuna, þannig að þetta varð smá torsótt“ sagði Þóra Kristín Jónsdóttir, fljótlega eftir leik.

Hún setti niður þriggja stiga skot á lokaandartökunum sem endaði á því að vinna leikinn fyrir Hauka.

„Ég man eiginlega ekki hvað var að gerast, við náðum frákastinu, ég stend beint fyrir aftan Lore og hitti.“

Jiselle Thomas klikkaði síðan á vítaskotunum sem hefðu jafnað leikinn fyrir Val.

„Það var mikill léttir. Auðvitað leiðinlegt fyrir hana en við fögnum því.“

Haukar verða með sópinn á lofti í næsta leik og ætla að klára einvígið.

„Við þurfum klárlega að mæta tilbúnari en í dag og bara leggja allt í þetta.“

Fannst þér þið mæta illa til leiks í dag?

„Já, svona svolítið. Við lentum eftir á í flestum aðgerðum og þær voru að ýta okkur út úr okkar hlutum. Þannig að við þurfum að skoða það aðeins og mæta tilbúnari í næsta leik“ sagði Þóra að lokum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira