Erlent

Myndir frá sjúkrabeði Castro

Fidel Castro, forseti Kúbu, og Hugo Chavez, forseti Venesúela, ræðast við á sjúkrabeði þess fyrrnefnda.
Fidel Castro, forseti Kúbu, og Hugo Chavez, forseti Venesúela, ræðast við á sjúkrabeði þess fyrrnefnda. MYND/AP

Kúbanska ríkisdagblaðið Granma birti í dag myndir af Fidel Castro, forseta landsins, þar sem hann sem bróðir hans Raul og Hugo Chavez, forseti Venesúela heimsóttu hann á sjúkrabeði hans. Myndirnar, sem eru sjö talsins, voru birtar á vefsíðu blaðsins.

Þetta eru þó ekki fyrstu myndirnar sem birtast af Kastró eftir að hann gekkst undir aðgerð vegna óskilgreindrar meltingafærakveisu í lok júlí og fól Rau, bróðurs sínum stjórnartaumana í landinu. Það var blað ungra kommúnista á Kúbu, Juventude Rebelde, sem birti mynd af honum í gær.

Castro sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagði að einhvern tíma tæki að ná fullri heilsu á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×