Fótbolti

Liverpool og Haifa leika í Kænugarði

Rafa Benitez var ekki hrifinn af því að fara til Ísrael
Rafa Benitez var ekki hrifinn af því að fara til Ísrael NordicPhotos/GettyImages

Síðari leikur Liverpool og Maccabi Haifa í forkeppni Meistaradeildar Evrópu verður leikinn í Kænugarði í Úkraínu vegna þeirrar ólgu sem ríkir í Ísrael um þessar mundir. Knattspyrnusamband Evrópu tilkynnti í síðustu viku að leikurinn yrði spilaður á hlutlausum velli og hafa forráðamenn Dynamo Kiev nú boðist til að hýsa leikinn.

Liverpool hafði betur 2-1 í fyrri viðureign liðanna á Anfield, en Rafa Benitez stjóri Liverpool, sagði ekki koma til greina að spila síðari leikinn í Ísrael því þar gæti enginn ábyrgst öryggi leikmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×